Erlent

Mannleg mistök talin ástæðan

Á myndinni sést í eina hluta Sea Diamond sem er enn ofansjávar.
Á myndinni sést í eina hluta Sea Diamond sem er enn ofansjávar. MYND/AFP

Mannleg mistök virðast vera orsök þess að gríska skemmtiferðaskipið Sea Dimond sökk í síðustu viku. Enn er ekki vitað hvað olli því að tæplega 22,500 tonna skip sigldi á sker rétt við eyjuna Santorini en sex manns eru í haldi vegna atviksins.

Um 1500 manns voru um borð og kvarta farþegar undan því að starfsfólk hafi ekki vitað hvað þeir væru að gera og ekki verið viljugir við að hjálpa. Nú er reynt sem mest að finna tvo franska farþega sem enn hafa ekki komið í leitirnar. Einnig er unnið að því að hreinsa upp olíumengun á svæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×