Erlent

Níu handteknir eftir hnífabardaga

Níu hafa verið handteknir eftir hnífabardaga fyrir utan næturklúbb í Álaborg í Danmörku um helgina. Tuttugu og eins árs karlmaður lét lífið eftir að hafa orðið fyrir ítrekuðum hnífsstungum og sex til viðbótar slösuðust.

Tveir árásarmannanna flýðu til Svíþjóðar, en bíll þeirra fannst þar og eftir að lögregla hafði gefið út viðvörun í fjölmiðlum gáfu þeir sig fram. Talið er að upphaf ólátanna megi rekja til átaka á milli mótorhjólaklíku og annars gengis sem lögregla þekkir einnig af ofbeldisverkum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×