Erlent

Íranar segja sjóliðana ljúga

Sjóliðarnir við komuna til Bretlands á Skírdag.
Sjóliðarnir við komuna til Bretlands á Skírdag. MYND/AFP

Írönsk sjónvarpsstöð hefur birt myndbandsupptökur af bresku sjóliðunum sem voru í haldi, þar sem þeir sjást tefla, spila borðtennis og horfa á sjónvarpið. Stjórnvöld í Teheran segja myndbandið sýna að fullyrðingar um að sjóliðarnir hafi verið beittir harðræði haldi ekki vatni.

Þau segja ennfremur að blaðamannafundur sjóliðanna á föstudaginn langa hafi verið eitt stórt sjónarspil, skipulagt af yfirmönnum breska sjóhersins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×