Erlent

Samfarir í 12 ára bekk

Skólastjórnin í Spearsville hefur um nóg að hugsa næstu daga.
Skólastjórnin í Spearsville hefur um nóg að hugsa næstu daga.

Fimm skólabörn á aldrinum 11-13 ára hafa verið handtekin fyrir að hafa samfarir fyrir framan hin börnin í bekknum. Þetta gerðist í smábænum Spearsville í Lousianafylki, í Bandaríkjunum, í gær. Atburðurinn sjálfur var hinsvegar í lok mars, að sögn AP fréttastofunnar. Tvær 11 ára telpur voru handteknar og þrír drengir 11, 12 og 13 ára.

Kennari barnanna skrapp frá í korter til þess að fara á fund á kennarastofunni. Og hann var varla kominn út úr dyrunum þegar kynlífið hófst. Nemendurnir þögðu hinsvegar lengi um atburðinn. Eftir handtökuna voru börnin afhent foreldrum sínum, þar sem þau eru öll undir lögaldri.

Bob Buckley, sem verið hefur lögreglustjóri bæjarins í 44 ár sagði að hann hefði hefði haldið að hann ætti ekki eftir að verða hissa á framferði manna, en það væri greinilegt að menn lærðu svo lengi sem þeir lifðu.

Óvíst er hvað gert verður við börnin. Samkvæmt lögum varðar það sektum og fangelsi að fremja ósiðlegt athæfi fyrir framan börn undir 17 ára aldri. Þar sem gerendur eru vel undir þeim aldri er líklegast að málið komi til kasta barnaverndaryfirvalda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×