Erlent

Trump slapp naumlega við skalla

Trump rakar Vince McMahon. Sjálfur fékk hann að halda sínu prúða hári.
Trump rakar Vince McMahon. Sjálfur fékk hann að halda sínu prúða hári. MYND/AP

Í Bandaríkjunum er talað um að fólk eigi "slæma hár-daga." Og enginn á fleiri slæma hár-daga en miljarðamæringurinn Donald Trump. Það ríkti því mikil spenna þegar Donald veðjaði á fjölbragðaglímumann, við vin sinn Vince McMahon. Sá sem tapaði átti að láta raka sig sköllóttann, í hringnum, strax eftir glímuna.

Bandaríkjunum til mikilla vonbrigða vann glímumaðurinn sem auðkýfingurinn veðjaði á.

Hann fékk því, brosleitur mjög, að raka vin sinn, en hélt sjálfur sínu prúða hári. Enn um sinn munu menn því velta því fyrir sér; "Hvað er eiginlega með hárið á honum Donald ?"




Fleiri fréttir

Sjá meira


×