Erlent

Hæsti maður heims í hnapphelduna

Langir handleggir Baos komu sér vel á dögunum þegar hann náði í plaststykki sem sat fast í barka höfrungs.
Langir handleggir Baos komu sér vel á dögunum þegar hann náði í plaststykki sem sat fast í barka höfrungs. MYND/AP

Allsérstakt brúðkaup fór fram Kína í vikunni þegar Bao Xishun, hæsti maður heims, gekk að eiga unnustu sína, Xia Shujuan. Þessi slánalegi geitahirðir er ríflega 2,3 metrar á hæð en eiginkona hans er hins vegar ekki nema 1,68 m, sem þykir raunar ágætt í Kína. Hún er því næstum helmingi styttri en eiginmaður hennar. Bao hefur lengi verið í konuleit og sent tilkynningar þess efnis út um allan heim. Hann virðist hins vegar hafa leitað langt yfir skammt því hjónakornin hittust í heimabæ þeirra beggja, Chifeng í Innri-Mongólíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×