Innlent

Krónikan hættir og seld til DV

Útgáfu Krónikunnar hefur verið hætt og var útgáfufélag hennar selt DV í dag. Ritstjóri og framkvæmdastjóri Krónikunnar hafa ráðið sig til DV. Tólf manns störfuðu hjá Krónikunni og hefur öllum starfsmönnum verið boðið starf hjá DV, en óvíst hve margir þiggja það.

Þetta var tilkynnt síðdegis í dag. Samkvæmt fréttatilkynningu DV er kaupverðið trúnaðarmál og hefur öllu starfsfólki Krónikunnar verið að boðið að ganga til liðs við blaðið. Sigríður Dögg Auðunsdóttir ritstjóri Krónikunnar verður umsjónarmaður helgarútgáfu DV og Valdimar Birgisson framkvæmdastjóri Krónikunnar verður sölu-og auglýsingastjóri blaðsins. Krónikan kom fyrst út um miðjan febrúar síðastliðinn og hafa sjö tölublöð verið gefin út.

„Við sáum bara tækifæri í því að sameina krafta okkar. Það er betra að gera þetta sameinað en í sitthvoru horninu. Það er erfitt að reka sjálfstæðan fjölmiðil á Íslandi og ég held að þetta hafi verið rétta skrefið," segir Valdimar Birgisson framkvæmdastjóri Krónikunnar.

Hann segir blendnar tilfinningar hjá starfsfólki Krónikunnar. Það hafi lagt mikið á sig til að gera gott blað og óvíst sé hvort allir fari yfir á DV.

Ritstjóri Krónikunnar lýsti því yfir að þörf væri fyrir fjölmiðil á borð við blaðið á íslenskum markaði. Mistókst sú tilraun að mati Valdimars ? „Ég held að það hafi tekist að gera góðan fjölmiðil og gott blað sem átti erindi við fólk. Það er bara erfitt að reka blað svona eitt og sér í hörðu samkeppnisumhverfi eins og það er í dag. Þannig að því leytinu til mætti segja að það hafi mistekist en Krónikan gæti lifað áfram. Jafnvel sem fylgirit DV en allt er óráðið í þeim efnum," segir Valdimar.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×