Innlent

Íhuga að stefna ríki vegna reykingabanns

Eigandi Ölstofunnar í miðbæ Reykjavíkur óskar eftir fundi með heilbrigðisráðherra til að leita úrræða fyrir þá viðskiptavini ríkissjóðs sem krárnar þjónusta. Það er að segja - reykingamenn. Reykingabann gengur í gildi eftir tvo mánuði og eigendur Ölstofunnar íhuga að stefna ríkinu fyrir skerðingu á atvinnuréttindum.

Eftir röska tvo mánuði verður þetta bannað. Að sitja með sinn öl á íslenskri krá og draga að sér tóbaksreyk. Skömmu áður en alþingi samþykkti að úthýsa reykingarmönnum af kaffihúsum og veitingastöðum - og vernda þar með heilsu starfsmanna, sýndi Gallupkönnun að um helmingur reykingarmanna er andvígur banninu sem tekur gildi þann 1. júní. Kormákur Geirharðsson, annar eiganda Ölstofunnar, segist leggja sig í líma við að þjónusta þá viðskiptavini ríkissjóðs sem kaupa sígarettur, en það verði honum erfitt eftir að reykingabannið gengur í gildi.

Fólk má ekki taka með sér drykki út af barnum og eigendur mega ekki útbúa skýli eða afdrep fyrir reykingamenn. Kormákur óskar eftir fundi með heilbrigðisráðherra til að leita lausna fyrir þá þúsundi Íslendinga sem reykja á krám.

Erlendur Þór Gunnarsson, lögmaður eigenda Ölstofunnar, hefur sent ríkislögmanni bréf til að óska eftir afstöðu hans til reykingabannsins. Málið snýst um hvort meðalhófs hafi verið gætt við setningu laganna. Samkvæmt meðalhófsreglunni má ekki taka íþyngjandi ákvörðun nema að lögmætu markmiði verði ekki náð með vægara móti. Erlendur segir að vel hefði mátt ná því markmiði að vernda heilsu starfsmanna með því að ganga skemur og leyfa eigendum kaffihúsa og veitingastaða að koma upp afdrepi fyrir reykingamenn.

 

 

 

 

 

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×