Erlent

Anna Nicole lést af of stórum lyfjaskammti

Playboy fyrirsætan Anna Nicole lést af of stórum lyfjaskammti, að sögn embættismanna í Flórída, þar sem hún lést áttunda febrúar síðastliðinn. Yfirvöld eru sannfærð um að þetta hafi gerst af slysni og segja að engin ólögleg lyf hafi fundist við rannsóknina.

Andlát milljarða-ekkjunar vakti gríðarlega athygli um heim allan, og leiddi af sér harðar deilur um hvað skyldi gert við lík hennar og hver eigi að fá forræði yfir sex mánaða dóttur hennar Dannielynn, sem í framtíðinni gæti einnig orðið milljarðaerfingi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×