Erlent

Stakk sér undir borð

Ban var brugðið þegar sprengjan sprakk.
Ban var brugðið þegar sprengjan sprakk. MYND/AP
Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, stakk sér undir borð þegar sprengja sprakk meðan hann hélt blaðamannafund í Írak í dag ásamt Nouiri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks.

Framkvæmdastjórinn var sýnilega skelkaður þegar hann kom undan borðinu. Íraski forsætisráðherrann lét hins vegar sem ekkert væri enda vanari sprengingum en gesturinn. Rétt áður en sprengjan sprakk sagði al-Maliki að heimsókn framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna væri vísbending um að stöðugleiki væri að komast á í landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×