Innlent

Nýtt félag stofnað um rekstur fjarskiptanets Símans

Skipti hf. sem á og rekur Símann hefur stofnað nýtt fyrirtæki, Mílu, um rekstur, uppbyggingu og viðhald fjarskiptanets Símans. Í tilkynningu um nýja félagið segir, að aðskilnaður fjarskiptanetsins frá annarri starfsemi Símans sé liður í þeirri stefnu eigenda Skipta hf. að bæði fyrirtækin geti enn betur sinnt þjónustuhlutverki sínu.

Míla tekur við þeirri starfsemi sem áður tilheyrði heildsölu Símans, viðhaldi og rekstri á fjarskiptanetinu og áframhaldandi þróun og uppbyggingu á því. Starfsmenn Mílu eru 220 og framkvæmdastjóri er Páll Á. Jónsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×