Innlent

Lenti í snjóflóði á Lyngdalsheiði

Karlmaður á vélsleða lenti í snjóflóði á Lyngdalsheiði á fjórða tímanum í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi var maðurinn fluttur með sjúkrabíl til Selfoss.

Hann kenndi sér meins í baki og herðum. Eftir skoðun var ákveðið að flytja manninn til Reykjavíkur. Snjóflóðið féll þar sem nokkrir menn voru saman á snjósleða og lenti á einum þeirra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×