Erlent

Klórgas notað í Írak

8 eru sagði látnir og 350 veikir, eftir 3 sjálfsmorðssprengjuárásir í Anbar-héraði í Írak í gær. Bílarnir voru allir fullir að klóri. Sprengjurnar sprungu með þriggja tíma millibili á þremur mismunandi stöðum í héraðinu en tveir árásarmannanna óku tankbílum og sá þriðji pallbíl.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem klór er notað til árása í Írak, það hefur verið gert alls 5 sinnum á síðustu 2 mánuðum. Klórgas er stórhættulegt við innöndun en auðvelt mun vera að nálgast það enda notað til hreingerninga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×