Erlent

Búrhvalur drekkti sjómanni

Japanskur sjómaður týndi lífi þegar hann og tveir félagar hans reyndu að bjarga búrhval sem hafði villst af leið undan vesturströnd Japans í dag. Mennirnir þrír skullu í sjóinn þegar hvalurinn sló sér í bátana sem þeir voru á.

Sjómennirnir voru að reyna að lokka hvalinn, sem er 15 metra langur, úr Uwajima-flóa og á haf út. Við það trylltist hvalurinn og lét öllum illum látum með þessum hörmulegu afleiðingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×