Erlent

Fréttamanni BBC rænt í Gaza-borg

Palestínskir vígamenn rændu í dag fréttamanni Breska ríkisútvarpsins, BBC, í Gaza-borg. Fréttamaðurinn, Alan Johnston, var á ferð í bíl sínum þegar fjórir grímklæddir menn réðust að honum og rændu.

Johnston, sem hefur verið að störfum á Gaza-svæðinu í þrjú ár, mun hafa kastað frá sér nafnspjaldi sínu, þegar hann var numinn á brott, svo vitað yrði um afdrif hans. Talsmaður Hamas-samtakanna hefur fordæmt mannránið sem skaði hagsmuni Palestínumanna.

Mannrán eru tíð á Gaza-svæðinu og fjölmiðlamenn vinsæl skotmörk. Þeim hefur þó flestum verið sleppt ómeiddum skömmu eftir að þeim er rænt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×