Enski boltinn

Mourinho: Yrði heiður að þjálfa Real Madrid

Jose Mourinho.
Jose Mourinho. MYND/Getty

Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, segir að það væri mikill heiður fyrir sig ef hann fengi einhverntímann að þjálfa stórlið Real Madrid á Spáni. Framtíð portúgalska þjálfarans hjá Chelsea hefur verið mikil til umræðu síðustu vikur og segja margir að leið hans liggi til Spánar fari svo að hann verði látinn fara frá Chelsea.

“Ég myndi líta á það sem mikinn heiður að fá að stjórna Real Madrid. Ég útiloka ekki að sú staða muni koma upp í framtíðinni en ég er allvega ekki á leiðinni til Real núna. Ég les blöðin eins og allir aðrir og sé að það er sagt að Real hafi áhuga á mér. Kannski er það ekki satt. Það eina sem ég veit er að ég hef samning við Chelsea til 2010,” sagði Mourinho.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×