Innlent

Elding olli skammhlaupi

Svo virðist sem að eldingu hafi lostið niður í loftlínur á milli Kolviðarháls og Geitháls og ollið skammhlaupi. Atvikið virðist hafa haft áhrif á búnað hjá Reykjavíkurborg sem og álverunum á Grundartanga og í Straumsvík.

Samkvæmt því sem Þórður Guðmundsson, forstjóri Landsnets, sem rekur dreifikerfi Landsvirkjunar, á það ekki að gerast undir eðlilegum kringumstæðum. Hvers vegna eldingin hafði þessi áhrif verður rannsakað eftir helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×