Enski boltinn

Carragher segir að Benitez fari ekki fet

Rafa Benitez hefur náð góðum árangri með Liverpool í Evrópukeppnum.
Rafa Benitez hefur náð góðum árangri með Liverpool í Evrópukeppnum. MYND/Getty

Jamie Carragher, varnarmaður Liverpool, er sannfærður um að knattspyrnustjórinn Rafa Benitez sé kominn til að vera á Anfield, þrátt fyrir endalausar vangaveltur um að hann sé á förum til Real Madrid. Carragher segir í viðtali við opinbera heimasíðu Liverpool að Benitez sé einn besti þjálfari heims.

"Ég held að hann fái ekki betra félag til að stjórna en Liverpool. Hér getur hann keypt þá leikmenn sem hann vill og hann er búinn að sanna sig á Spáni - með Valencia. Allir leikmenn liðsins njóta þess að vinna með honum," segir Carragher, en á fyrstu tveimur árum sínum hjá Liverpool hefur Benitez skilað tveimur titlum í hús, Evrópumeistaratitlinum og Bikarmeistaratitilinum.

"Það hljóta allir að sjá það sem hann hefur gert fyrir liðið á þessum árum, sérstaklega í Evrópu. Á næstu leiktíð viljum við ná betri árangri í ensku deildinni og ég hef ekki trú á öðru en að Benitez verði með okkur í að ná því markmiði," segir Carragher.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×