Erlent

Chavez úthúðar Bush

Hugo Chavez forseti Venesúela kallaði Bush Bandaríkjaforseta pólitískt lík og tákn kúgunar á fjölmennum útifundi í Búenos Aires í Argentínu í gær, um það leyti sem Bush kom frá Brasilíu til nágrannaríkisins. Báðir eru forsetarnir á fundaferð um Suður-Ameríku til að bæta tengslin við bandamenn sína í álfunni.

Mótmæli voru í Montevídeó, höfuðborg Úrúgvæ, vegna komu Bush þangað, meðal annars voru gluggar brotnir á veitingastöðum McDonalds. Heimsókn hans hefur staðið til í nokkurn tíma en Chavez segir algera tilviljun að sína fundaferð hafi borið upp á sama tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×