Innlent

Umboðsmaður barna aðhefst ekki vegna forsíðu

Umboðsmaður barna telur ekki ástæðu til að bregðast við ábendingum doktors í fjölmiðlafræði um að forsíða auglýsingabæklings Smáralindar feli í sér klámfengnar vísanir. Fjórtán ára fyrirsæta er á forsíðunni.

Forsíða á auglýsingabæklingi Smáralindar hefur valdið nokkru fjaðrafoki í kjölfar bloggfærslu frá Dr. Guðbjörgu Hildi Kolbeins, kennara í fjölmiðlafræði við Háskóla Íslands. Taldi hún að fyrirsætan á forsíðumyndinni, sem er fjórtán ára, væri í "velþekktri stellingu úr klámmyndum" - eins og sagði á blogginu. Ennfremur sagði að forsíðumyndin blandaði saman sakleysi bernskunnar og tákni úr klámi með þeirri útkomunni að hin saklausa hóra, hin hreina mey yrði í einni svipan að klámdrottningu. - Fleiri hugleiðingar fylgdu færslunni sem eru of klámfengnar til að hafa eftir. Bloggfærslunni hefur nú verið eytt.

Guðbjörg Kolbeins sendi erindi vegna forsíðunnar til umboðsmans barna. Aðspurð sagði Ingibjörg Rafnar, umboðsmaður barna að erindinu hefði verið svarað með því að embættið teldi ekki ástæðu til að aðhafast í þessu máli. Var þó Guðbjörgu Hildi bent á Jafnréttisstofu, kæmi til álita auglýsingakafli jafnréttislaga sem kveður á um að þess sé gætt að auglýsignar séu ekki öðru kyninu til minnkunnar. Jafnréttisstofa hafði ekkert erindi fengið þegar haft var samband við hana í dag.

Guðbjörg Kolbeins vildi ekkert láta hafa eftir sér þegar Stöð tvö náði sambandi við hana í dag. Nokkur umræða hefur orðið um þessa forsíðumynd útfrá femínískum sjónarhornum. Katrín Anna Guðmundsdóttir, talskona Femínistafélagsins gerir þetta mál að umtalsefni á bloggsíðu sinni og segir meðal annars um forsíðumyndina:

"Mér finnst nóg að það sé þó nokkur hópur fólks sem sér táknmyndir úr kláminu í myndinni - það ætti að vera næg ástæða fyrir okkur til að setja spurningamerki við svona framsetningu og sleppa því að setja börn í svona aðstæður. " tilvitnun lýkur




Fleiri fréttir

Sjá meira


×