Erlent

Fjórir létust í þyrluslysi á Hawaii

Rannsóknarmenn líta yfir flak þyrlunnar við Princeville flugvöllinn á Hawaii.
Rannsóknarmenn líta yfir flak þyrlunnar við Princeville flugvöllinn á Hawaii. MYND/AP

Fjórir létust og þrír slösuðust alvarlega þegar þyrla með ferðamönnum innanborðs fórst á flugvelli á eynni Kauai á Hawaii í gær. Flugmaðurinn var einn hinna látnu, en hann hafði yfir tíu þúsund flugtíma á þyrlunni. Slysið átti sér stað á Princeville flugvellinum eftir miðnætti í nótt að íslenskum tíma.

Flugmaðurinn tilkynnti skömmu fyrir slysið að vandræði væru með vökvakerfi þyrlunnar.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×