Innlent

Eiginkona árasarmannsins eigandi Lauffells

Pólverjinn, Vojtjek, var illa útleikinn eftir verkstjórann.
Pólverjinn, Vojtjek, var illa útleikinn eftir verkstjórann. MYND/Stöð2

Maðurinn sem gekk í skrokk á pólskum verkamanni um helgina er ekki eigandi Lauffells ehf. eins og fram hefur komið í fréttum. Það er eiginkona árásarmannsins sem er eigandi fyrirtækisins. Í yfirlýsingu frá fyrirtækinu segir að árásarmaðurinn hafi starfað sem verkstjóri hjá fyrirtækinu en látið af störfum í síðasta mánuði og sé á engan hátt tengdur því né starfsemi þess. Undir yfirlýsinguna skrifar Rúnar Þór Guðmundsson framkvæmdastjóri.

Árásarmaðurinn Michael Piecychna er sakaður er um líkamsárásina og hefur áður gerst brotlegur við lög. Hann bíður nú afplánunar vegna kynferðisbrots. Í nýjasta hefti tímaritsins Ísafoldar er grein eftir blaðamanninn Fian Paul en hann réði sig í vinnu hjá fyrirtækinu og kemur fram í greininni að eigandi fyrirtækisins sé kallaður ,,the criminal" eða glæpamaðurinn.

Eiginkonan Lydia Piecychna er skráður eigandi fyrirtækisins.

Pólverjinn dvaldi á slysadeild og var illa farinn eftir verkstjórann. Sauma þurfti nokkur spor í augabrún hans og enni og hann sá ekkert með öðru auganu.

Málið er til rannsóknar hjá lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×