Erlent

Á annað hundrað pílagrímar látnir

Að minnsta kosti 112 pílagrímar liggja í valnum eftir fjölmörg hryðjuverk í Írak í dag. Versta árásin var framin í borginni Hillah en þar laumuðu tveir menn gyrtir sprengjubeltum sér inn í helgigöngu sjía sem var á leið til hinnar helgu borgar Karbala. Yfir níutíu fórust í því hermdarverki. Sjúkrahús í nágrenninu fylltust fljótlega af særðu fólki og er ástand margra sagt mjög alvarlegt. Árásin í Hillah er ein af þeim mannskæðustu sem gerð hefur verið í Írak frá innrásinni vorið 2003. Sú blóðugasta var framin í Bagdad í byrjun síðasta mánaðar en þá létust 130 manns.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×