Erlent

Skattmann stekkur á Alexöndru

Ekki lengur prinsessa.
Ekki lengur prinsessa.

Þegar Alexandra prinsessa sagði já við kærastann sinn klukkan fjögur á föstudag, urðu umtalsverðar breytingar á hennar högum. Hún er nú ekki lengur prinsessa heldur aðeins greifynja, og danski skattmann mun hér eftir hirða drjúgan skerf af tekjum hennar.

Sem prinsessa var Alexandra skattfrjáls, og eftir skilnaðinn fékk hún laun úr ríkissjóði sem prinsessa og móðir tveggja prinsa. Hún slapp líka við virðisaukaskattinn. Safnaði saman nótum fyrir allt sem hún keypti, og fékk skattinn endurgreiddan. En með jáinu á föstudag, heyra öll slík forréttindi sögunni til.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×