Innlent

Gekk í skrokk á undirmanni sínum

Eigandi verktakafyrirtækis er í gæsluvarðhaldi eftir að hafa, síðastliðna nótt, gengið í skrokk á pólskum verkamanni sem vinnur hjá honum. Árásarmaðurinn er nýdæmdur og bíður afplánunar fyrir kynferðisbrot. Verkamaðurinn var ásamt vinnufélögum sínum í gleðskap í gærkvöldi þegar hann tók að syfja og ákvað að leggja sig í bíl fyrirtækisins. "Fyrirtækið sem ég vinn hjá, Lauffell, var með smá samkvæmi og þegar líða tók á kvöldið varð ég þreyttur og ákvað að leggja mig í bílnum. Einhverju seinna vaknaði ég við það að yfirmaður minn reif upp hurðina á bílnum og dróg mig út og byrjaði svo að sparka í mig þar sem ég lá í jörðinni og kýla mig í andlitið."

Wojciech var fluttur á slysadeild þar sem hann dvaldi í nótt. Hann er illa farinn eftir yfirmann sinn en sauma þurfti nokkur spor í augabrún hans og enni. Hann sér ekkert með öðru auganum en vonast til að það lagist með tímanum.

Wojciech var fluttur á slysadeild þar sem hann dvaldi í nótt. Hann er illa farinn eftir yfirmann sinn en sauma þurfti nokkur spor í augabrún hans og enni. Hann sér ekkert með öðru auganum en vonast til að það lagist með tímanum.

Vojtjek vann hjá verktakafyrirtækinu Laufelli. Í nýjasta hefti tímaritsins Ísafoldar er grein eftir blaðamanninn Fian Paul en hann réði sig í vinnu hjá fyrirtækinu og kemur fram í greininni að eigandi fyrirtækisins sé kallaður ,,the criminal" eða glæpamaðurinn. Fyrirtækið hefur meðal annars verið með menn í vinnu við Hellisheiðavirkjun.

Eigandinn hefur áður gerst sekur um refsivert athæfi á Íslandi.Hann var nýlega dæmdur í 12 mánaða fangelsi og til greiðslu sektar fyrir kynferðislega misnotkun. Hann er nú í haldi lögreglu og líklega verður krafist gæsluvarðhalds yfir honum. Vojtjek gaf skýrslu til lögreglu í dag og hefur lagt fram kæru og er málið til rannsóknar hjá rannsóknardeild lögreglunnar.


Tengdar fréttir

Eiginkona árasarmannsins eigandi Lauffells

Maðurinn sem gekk í skrokk á pólskum verkamanni um helgina er ekki eigandi Lauffells ehf. eins og fram hefur komið í fréttum. Það er eiginkona árásarmannsins sem er eigandi fyrirtækisins. Í yfirlýsingu frá fyrirtækinu segir að árásarmaðurinn hafi starfað sem verkstjóri hjá fyrirtækinu en látið af störfum í síðasta mánuði og sé á engan hátt tengdur því né starfsemi þess. Undir yfirlýsinguna skrifar Rúnar Þór Guðmundsson framkvæmdastjóri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×