Innlent

Uppörvandi fyrir hægri grænt framboð

Gallup-könnun, á fylgi við nýtt framboð umhverfisverndarsinna, sýnir að það hefur hljómgrunn meðal þjóðarinnar, segir Ómar Ragnarsson sem verður á lista flokksins í Reykjavík ásamt Margréti Sverrisdóttur og Jakobi Frímanni Magnússyni. Listinn býður fram í öllum kjördæmum fyrir kosningarnar í vor.

Búið er að ákveða nafn á þetta nýja framboð umhverfisverndarsinna en hvað það er hafa menn ekki viljað upplýsa. Heimildir fréttastofu herma að Ómar Ragnarsson muni leiða listann í Reykjavík norður og Margrét Sverrisdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksins, í Reykjavík suður. Margrét vildi ekki staðfesta það í samtali við fréttastofu í dag, en sagði það vissulega mjög rökrétt. Hún staðfesti þó að Jakob Frímann Magnússon yrði á lista flokksins. Gallup könnun hefur verið gerð á fylgi við framboðið en niðurstöður hennar hafa ekki verið kunngjörðar.

"Það eina sem ég get sagt er að þetta eru uppörvandi tölur. Þetta sýnir að það er hljómgrunnur fyrir svona framboði," sagði Ómar Ragnarsson í Silfri Egils í dag. Aðspurður hvort fylkingin muni ekki taka fylgi frá Samfylkingunni segir Ómar: "Nei, niðurstaðan verður alltaf þessi og það sýna skoðanakannanirnar að við tökum fylgi frá nánast öllum flokkum."

Ómar segir að umhverfismálin hafi læstst inni á vinstri kantinum. "Markmiðið er bara eitt fyrir þessar kosningar, þess vegna er ég að hugsa um að leggja þessu lið, það er að breikka grænu fylkinguna til hægri frá miðjunni."

Framboðið verður að öllum líkindum kynnt formlega eftir um tíu daga. Illugi Gunnarsson, frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins, segir nýtt hægri grænt framboð ekki vondar fréttir fyrir Sjálfstæðisflokkinn og óttast ekki að það taki fylgi frá sínum flokki. Umhverfismál eigi að vera þverpólitísk. "Þetta bara fer allt eftir stefnumálunum. Kjósendur eru skynsamir. Þeir skoða stefnu flokkanna, hvaða fólk er í framboði og fyrir hvað þessir flokkar standa og taka afstöðu út frá því."

 

 

 

 

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×