Innlent

Uppboð á tollkvótum hækkar matarverð

Ákvörðun stjórnvalda um uppboð á innflutningskvótum á kjöti og ostum stuðlar að hærra vöruverði og er andstæð markmiðum ríkisstjórnarinnar um að lækka matarverð. Þetta segir framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu. Samtökin vildu að tollkvótum yrði úthlutað án uppboðs.

Alþingi samþykkti í vikunni breytingu á lagaákvæðum um tollkvóta í vikunni og hafnaði þar með tillögum Samtaka atvinnulífsins og Samtaka verslunar og þjónustu um að tollkvótum á kjöti og ostum yrði úthlutað án uppboðs. Samtökin vildu að helmingi tollkvóta yrði úthlutað miðað við markaðshlutdeild umsækjenda í viðkomandi vöruflokki en afganginum síðan úthlutað til umsækjenda með hlutkesti. Ríkið hefði þá engar tekjur af kvótaúthlutunum og stuðlaði ekki að hærra vöruverði. Öllum tillögum samtakanna var hafnað. Sigurður Jónsson, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, segir uppboð á kvótum ígildi tolla. En hvað þýðir það fyrir almenning? "Það þýðir það að fimm hundruð milljónir hljóta að færast inn í vöruverðið sem ígildi tolla. Það hækkar vöruverðið sem er andstætt markmiðum ríkisstjórnarinnar um að lækka vöruverð," segir Sigurður.

Töluverðar upphæðir gætu runnið úr vasa almennings - í ríkissjóð - með því að halda kvótauppboðum til streitu, að mati Sigurðar. "Þetta gæti náð töluverðum upphæðum, var síðast um 180 milljónir fyrir 490 tonn og miðað við það magn sem bætist við núna, sem eru tæp 800 tonn, þá sýnist okkur að heildarupphæðin gæti náð um 500 milljónum."

 

 

 

 

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×