Innlent

Bílvelta á Hellisheiði

Nú rétt í þessu varð bílvelta á Hellisheiði. Um jeppling var að ræða og virðist hann hafa skemmst mikið í veltunni. Að sögn sjónarvotta skreið ökumaðurinn, kona af erlendu bergi brotin, út úr bílnum án aðstoðar og virðist hafa sloppið ómeidd.

Hún bíður nú aðhlynningar í bíl sem stöðvaði við Jepplingurinn er eins og áður sagði mikið skemmdur. Að sögn sjónarvotta virðist toppur bílsins hafa lagst saman að miklu leyti. Bensín fossar einnig úr honum. Lögreglan er ekki enn komin á svæðið en búist er við henni þar á næstu mínútum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×