Innlent

Eldur kviknaði útfrá eldavél

Húsmóðir í einbýlishúsi á Brekkunni á Akureyri, sýndi snarræði þegar hún vaknaði við reykskynjara í nótt, greip til slökkvitækis og náði að slökkva eld, sem kviknað hafði út frá eldavél. Hvorki hana né tvö börn hennar sakaði af reyk, en konan kallaði slökkvilið á vettvang til að reykræsta húsið.

Lögregla telur að reykskynjarinn kunni að hafa skipt sköpum að ekki fór verr og svo hafi slökkvitæki verið við hendina, sem ekki sé mjög algengt á heimilum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×