Innlent

Tekinn á 155 kílómetra hraða

MYND/Guðmundur

Tveir ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbrautinni í kvöld. Var það á þeim kafla þar sem hún er tvöföld. Annars þeirra ók á 121 kílómetra hraða og má búast við sekt. Hann var einn á ferð. Annar var síðan tekinn á 155 kílómetra hraða og var með farþega í bílnum. Sá má búast við því að missa ökuleyfi í einhvern tíma og fá einnig sekt að sögn lögreglu Suðurnesja.

Á höfuðborgarsvæðinu hafa orðið alls tíu umferðaróhöpp það sem af er kvöldi en engin slys urðu þó á fólki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×