Erlent

Íranir misreikna sig alvarlega

Tony Blair forsætisráðherra Breta.
Tony Blair forsætisráðherra Breta. MYND/Reuters

Tony Blair forsætisráðherra Breta sagði í dag að Íranir ögruðu alþjóðasamfélaginu og misreiknuðu sig alvarlega í andstöðu sinni við kröfur Sameinuðu þjóðanna um að hætta við kjarnorkuáætlun landsins.

Þetta sagði hann á fundi eftir ummæli Írana um að þeir myndu aldrei hætta auðgun úrans, þrátt fyrir samkomulag stærstu ríkja heims um að vinna að nýrri ályktun Sameinuðu þjóðanna.

Blair sagði ummælin frá Íran valda áhyggjum þar sem þau gæfu til kynna að Íranir væru að ögra alþjóðasamfélaginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×