Innlent

Fleiri börn drukkna í Evrópu en færri á Íslandi

Eitt barn hefur drukknað á Íslandi frá því úrbætur voru gerðar um miðjan tíunda áratuginn á sundstöðum og víðar. Á sama tíma hefur þeim börnum sem drukkna í Evrópu fjölgað.

Á árunum 1984 til 1993 drukknuðu þrettán börn á aldrinum 0-14 ára á Íslandi en 35 lifðu af eftir að hafa næstum drukknað, sem þýðir að börnin hafa hætt að anda en verið endurlífguð. Þar af fengu þrjú börn heilaskaða vegna súrefnisskorts. Alls 48 tilvik. Frá 1995 hefur hins vegar eitt barn drukknað og sjö næstum drukknað. Á sama tíma fjölgar þeim börnum sem drukkna í Evrópu. Herdís Storgaard, forstöðumaður Forvarnarhúss Sjóvár, telur að skýringin liggi meðal annars í því að við búum enn að því átaki sem hrint var í framkvæmd árið 1994. "Þá var tekið á öllum þessum þáttum sem voru ekki í lagi hér á landi, það var hrint af stað miklu átaksverkefni í að fræða fólk um það að grunnt vatn eins og 2-5 sentímetrar geta verið nóg til þess að smábörnin drukkna."

Menn telja tvær ástæður skýra fjölgun barna sem drukkna í Evrópu, annars vegar miklir búferlaflutninga milli landa, þegar fólk flytur á ókunnugt svæði og er til dæmis ekki vant sundlaugum og strandstöðum, og hins vegar fjölgun ferðamanna til sólarlanda.

Slysin verða enn helst í sundlaugunum hér á landi segir Herdís og varar við fölsku öryggi sundkúta. Kútar eru ekki öryggisbúnaður, segir hún, og aldrei megi nokkurn tímann líta af ósyndu barni í vatni hvort sem það er með eða án kúts. Sérstaklega séu hringkútar varhugaverðir. "Þetta er leikfang og þetta er hættulegt leikfang. Fólk ætti ekki undir neinum kringumstæðum að nota þetta eða taka með sér til útlanda."

 

 

 

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×