Körfubolti

Ellefti sigur Dallas í röð

Dirk Nowitzki var frábær fyrir Dallas í nótt þegar liðið bar sigurorð af Denver í NBA-deildinni, 115-95. Nowitzki skoraði 31 stig, hirti 11 fráköst og gaf 8 stoðsendingar í þessum ellefta sigurleik Dallas í röð. Enn fremur var sigurinn sá 19. í röð á heimavelli.

Sigur Dallas var aldrei í hættu en frábær varnarleikur liðsins gerði stjörnum Denver, Carmelo Anthony og Allen Iverson, afar erfitt fyrir. Anthony náði reyndar að skora 34 stig en hann og Iverson hafa oft hitt betur.

LA Clippers lagði Golden State, 103-90, þar sem Elton Brand skoraði 31 stig og tók 12 fráköst auk þess að verja átta skot. Al Harrington var atkvæðamestur hjá Golden State með 24 stig.

San Antonio spilaði frábæra vörn og hélt Seattle í aðeins 71 stigi þegar liðin mættust í nótt. San Antonio skoraði hin svegar 102 stig og vann stóran sigur.

Milwaukee vann sinn fyrsta sigur í sjö leikjum með því að leggja Philadelphia af velli, 109-90, og þá tapaði Boston 22. leiknum af síðustu 23 fyrir Utah, 97-81.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×