Sýknaði ríkið af skaðabótakröfu Karls K. Karlssonar 15. febrúar 2007 17:53 MYND/GVA
Hæstiréttur sýknaði í dag íslenska ríkið af skaðabótakröfu Karls K. Karlssonar. Hann taldi sig hafa beðið skaða vegna þess að íslenska ríkið hélt einkarétti til innflutnings og heildsöludreifingar á áfengi eftir gildistöku EES-samningsins 1. janúar 1994. Karl K. Karlsson byggði kröfu sína á því að samkvæmt skilmálum EES-samningsins hefði ríkið átt að gefa einkarétt sinn eftir 1. janúar 1994 en gerði það ekki fyrr en 23 mánuðum seinna. Sóttist fyrirtækið eftir skaðabótum fyrir það tímabil. Dómstóllinn hafnaði því á þeim grunni að fyrirtækið hefði ekki sýnt fram á tjón sitt af því að hafa ekki stundað innflutning og heildsöludreifingu á tímabilinu. Einnig taldi dómurinn að ekki hefði verið sýnt fram á orsakasamband milli slíks hugsanlegs tjóns og saknæmrar háttsemi. Þrátt fyrir að íslenska ríkið hafi verið sýknað af kröfum stefnanda var það dæmt til þess að greiða honum 3,5 milljónir króna í málskostnað.
Fréttir Innlent Mest lesið Gummi Emil feginn að ekki fór verr eftir misheppnaðan sveppatúr Innlent Verið að fara fram á rannsókn, ekki þöggun Innlent Efna til söfnunar fyrir móður Kolfinnu Eldeyjar Innlent Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Innlent Rússar gerðir afturreka með óvæntar tillögur á allsherjarþingi SÞ Erlent Fimmti hver myndi helst velja að flytja til Danmerkur Innlent Bíða gagna og tjá sig lítið um rannsóknina á meðan Innlent Ómetanleg vinátta eftir lífsbjörg Innlent Starfsmenn flýja framboð Robinson eftir „svartur nasisti“-hneykslið Erlent Manndráp í Kiðjabergi komið til saksóknara Innlent Fleiri fréttir Ein kært nauðgun og fjórar segjast hafa verið beittar ofbeldi Kanna hvort fleiri bjarndýr leynist fyrir vestan Manndráp í Kiðjabergi komið til saksóknara Máttu vita að eiturlyfjasalinn þeirra væri að flytja inn eiturlyf Ungmenni í viðkvæmri stöðu hagnýtt í afbrot hér á landi Ógn Rússa við Norðurlönd og Eystrasaltsríki rædd í HR Efna til söfnunar fyrir móður Kolfinnu Eldeyjar Lögreglan segir hóp ungmenna hagnýttan í skipulagða brotastarfsemi Bíða gagna og tjá sig lítið um rannsóknina á meðan Fylgjast grannt með ungmennum á Laufskálaréttarballi Bein útsending: Hnattrænar áskoranir Norðurlanda Verið að fara fram á rannsókn, ekki þöggun Synjanir farið úr tíu prósentum upp í tæp sextíu á tveimur árum Gummi Emil feginn að ekki fór verr eftir misheppnaðan sveppatúr Fimmti hver myndi helst velja að flytja til Danmerkur Ómetanleg vinátta eftir lífsbjörg Tilkynnt um helst til ungan ökumann Óásættanlegt að vísa NPA-vandanum alfarið til sveitarfélaga Ánægður með frumvarp sjálfstæðismanna Bjarni fundaði með Guterres Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi Kom vini sínum til bjargar á fótboltaæfingu og 34. klukkustund Bakgarðshlaups Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Verður Þórsmörk þjóðgarður? Vill burt með rándýr, úrelt og óþarfa stimpilgjöld Vonar að sveitarfélögin leysi úr NPA-vandanum Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Fjármögnun NPA-samninga og Bakgarðshlaupið í beinni Samgöngusáttmálinn, Yazan og loftlagsmál á Sprengisandi Slegist með vopnum við skemmtistað Sjá meira