Innlent

Fjórir mánuðir fyrir vörslu amfetamíns

 

 

Tuttugu og fjögurra ára gamall karlmaður var dæmdur til fjögurra mánaða fangelsisvistar í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Dómurinn er skilorðsbundinn til þriggja ára. Amfetamínið fannst þegar lögregla gerði húsleit á heimili mannsins og fann tæplega 120 grömm af efninu. Ákærði játaði brotið en hann hefur ekki áður gerst brotlegur við lög. Maðurinn var auk þess dæmdur til að greiða allan sakarkostnað vegna málsins

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×