Erlent

Algjör hasshaus

Þessir hasskögglar, sem fundust á Akranesi, munu vera ekta.
Þessir hasskögglar, sem fundust á Akranesi, munu vera ekta.

Belgiskur maður var handtekinn fyrir hassmygl frá Hollandi til heimalandsins, vegna þess að það var svo megn hasslykt af honum að aðrir farþegar í lestinni þoldu ekki við. Hollenskir lestarverðir létu belgisku lögregluna vita af manninum, og hans var beðið þegar lestin kom til Antwerpen.

Maðurinn viðurkenndi að hann hefði farið á kaffihús í Amsterdam og reykt þar ótælplega, auk þess sem hann keypti sér hassbirgðir fyrir tæpar átján þúsund krónur, til þess að taka með heim. Belgiska lögreglan sleppti honum þó lausum þegar kom í ljós að hassið sem hann hafði keypt á kaffihúsinu var fínt mulið rauðkál.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×