Fótbolti

Fetar Zidane í fótspor Beckham?

Það fór vel á með þeim Zinedine Zidane og Spike Lee í Madison Square Garden í New York í vikunni.
Það fór vel á með þeim Zinedine Zidane og Spike Lee í Madison Square Garden í New York í vikunni. MYND/Getty

Franski knattspyrnumaðurinn fyrrverandi Zidedine Zidane er þessa stundina staddur í New York þar sem hann hefur meðal annars sótt NBA-leiki og tískusýningar - og vakið mikla athygli. Ýmsir fjölmiðlar í Bandaríkjunum gera að því skóna að Zidane hafi hitt forráðamenn bandaríska liðsins New York Red Bulls með mögulegan samning í huga.

Zidane skemmti sér konunglega á leik með New York Knicks á miðvikudaginn þar sem hann sat í næsta nágrenni við kvikmyndaleikstjórann Spike Lee. Zidane er í borginni með eiginkonu sinni og segir sá franski að ferðin hafi verið hugsuð sem frí. Svo hefur hins vegar ekki verið og hafa fjölmiðlar fylgt Zidane hvert fótmál.

Will Kuhns, talsmaður bandarísku atvinnumannadeildarinnar, vildi engu svara þegar hann var spurður út í mögulega komu Zidane í bandaríska boltann. "Við ræðum ekki um leikmenn sem eru ekki samningsbundnir deildinni."

Forráðamenn deildarinnar eru sagðir mjög áhugasamir að fá Zidane til liðs við sig og telja að hann geti haft sömu áhrif og David Beckham hefur þegar haft, með því að skrifa undir samning við LA Galaxy fyrir skemmstu. Athygli bandarísku deildarinnar hefur aldrei verið meiri og sjá skipuleggjendur hennar sér gott til glóðarinnar fari svo að Zidane komi líka.

Jeff Agoos, framkvæmdastjóri Red Bulls, segist ekkert hafa rætt við Zidane. "Og við höfum engin áform um að ræða við hann. Ég myndi hins vegar hafa gaman að því að kíkja út á lífið með honum og skipast á sögum úr boltanum," gantaðist Agoos.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×