Innlent

Ísland miðpunktur í kaupum á ferðaþjónustu

Kaupstefnan verður haldin í nýju- og gömlu Laugardalshöllinni.
Kaupstefnan verður haldin í nýju- og gömlu Laugardalshöllinni. MYND/Pjetur Sigurðsson

Hin árlega Mid-Atlantic kaupstefna verður haldin dagana 8.-11. febrúar í anddyri nýju og gömlu Laugardalshallarinnar. Kaupstefnan er á vegum Icelandair og er markmið hennar að tengja saman kaupendur og seljendur ferðaþjónustu í Bandaríkjunum og Evrópu.

 

Á föstudag verður svokallaður "workshop" dagur milli klukkan 15 og 18 og verður þá líf og fjör á staðnum, litríkir sýningarbásar og skipst á hugmyndum og skoðunum, segir í fréttatilkynningu.

Kaupstefnan er árlegur lykilviðburður í ferðaþjónustunni og haldin til að viðhalda og auka ferðamannastraum til Íslands. Þátttakendur verða á fimmta hundrað frá 17 löndum og fer þeim fjölgandi ár frá ári. Að þessu sinni verða fulltrúar frá Nova Scotia áberandi, en í vor hefst beint áætlunarflug milli Íslands og Halifax.

Gunnar Már Sigurfinnsson framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair segir augljóst að kaupstefnan beri árangur. Hann sagði: "Hér eru til dæmis mjög margir frá Bandaríkjunum að kaupa ferðaþjónustu frá Norður-Evrópu sem þeir síðan selja neytendum vestra. Þá er einnig gaman að sjá fulltrúa Eystrasaltsríkja hér að markaðssetja ferðaþjónustu sína. Ísland er miðpunkturinn í öllu þessu starfi."

Borgarstjóri setur Mid-Atlantic kaupstefnuna í Listsafni Reykjavíkur annað kvöld klukkan 19.

Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu Mid-Atlantic




Fleiri fréttir

Sjá meira


×