Erlent

Olmert segir samningaleiðina færa

Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels.
Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels. MYND/AP

Forsætisráðherra Ísraels, Ehud Olmert, sagði í dag að Íranir væru ekki búnir að ná þeim árangri í kjarnorkumálum sem þeir segjast hafa náð. Hann sagði líka enn hægt að beita Írana þrýstingi til þess að fá þá hætta við kjarnorkuáætlun sína.

„Ég held að það sé hægt að koma í veg fyrir kjarnorkuáætlanir Írana án þess að grípa til hernaðarlegra aðgerða." sagði Olmert í ræðu við leiðtoga bandarískra gyðinga í Jerúsalem í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×