Innlent

Umferðarteppa í Ártúnsbrekku

Miklar umferðartafir eru nú í Ártúnsbrekku vegna aftanákeyrslu sem þar varð. Lögreglan segir að ekki sé vitað hvað olli árekstrinum. Engin slys urðu á fólki í árekstrinum og bílarnir skemmdust lítið.

Lögreglan sagði að algengt væri að miklar umferðartafir yrðu í Ártúnsbrekkunni ef árekstrar yrðu í henni. Sérstaklega á hánnatíma eins og núna, þegar margir eru á leið heim úr vinnu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×