Erlent

Mikið mannfall í bílsprengjuárás í Bagdad

MYND/AP

45 eru látnir og 95 særðir eftir að vörubíll fullur af sprengiefni sprakk við fjölfarinn markað í miðborg Bagdad í dag. Sprengingin varð í Sadriya-hverfinu þar sem sjíar eru fjölmennir en sprengjuárásir hafa áður verið gerðar þar. Ekki liggur fyrir hver stóð á bak við tilræðið en eins og kunnugt er hafa verið viðvarandi átök milli trúarhópa í Írak síðustu mánuði. Fyrr í dag létust að minnsta kosti fimm og 40 særðust í röð bílsprengjuárása í borginni Kirkuk en þar eru Kúrdar í miklum meirihluta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×