Lýsing af leiknum hraðaði akstrinum 31. janúar 2007 14:52 Lögregla fordæmir hraðakstur ökumanns sem var mældur á 134 km hraða á Reykjanesbraut í Garðabæ þar sem hámarkshraði er 50 km. MYND/Hörður Sveinsson
Sautján ára gömul stúlka var stöðvuð á Vesturlandsvegi í gær á 125 km hraða. Hún gaf lögreglu þá skýringu að hún hefði gleymt sér við lýsingu í útvarpinu á leik Íslendinga og Dana. Í fréttatilkynningu frá Lögreglunni segir að í hita leiksins hafi hún gleymt að fylgjast með hraðamælinum. Skömmu síðar var liðlega tvítugur piltur tekinn á sama vegi á 129 km hraða. Þá var karlmaður á þrítugsaldri stöðvaður í gærkvöldi á Reykjanesbraut í Garðabæ á 134 km hraða, en þar er hámarkshraði 50 km auk þess sem framkvæmdir standa þar yfir. Lögregla lítur atvik af þessu tagi alvarlegum augum og fordæmir slíkan háskaakstur. Lögreglan í Reykjavík stöðvaði 18 ára pilt sem keyrði fram úr strætisvagni á gangbraut í Breiðholti. Drengurinn hafði aldrei öðlast ökuréttindi og sagðist hafa verið að fíflast. Ökumaður stakk af eftir að hafa ekið á karlmann á sjötugsaldri í austurborginni í gærmorgun. Tuttugu og fjögur umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á síðasta sólarhring.
Fréttir Mest lesið Krefjast gæsluvarðhalds Innlent Vaktin: Fannst þungt haldinn í Gufunesi og lést skömmu síðar Innlent Lögregla lýsir eftir manni Innlent Lýsir ofríki og andlegu ofbeldi Gunnars Smára Innlent Stórfelldur laxadauði í Berufirði Innlent Rannsókn lögreglu enn á frumstigi Innlent Rússar gefa lítið fyrir niðurstöðu fundar Bandaríkjanna og Úkraínu Erlent Framstuðarinn horfinn í morgun: „Ég á enga óvini svo ég viti til“ Innlent Hörfa frá Kúrsk Erlent Ögurstund upp runnin hjá VR Innlent Fleiri fréttir Draga úr fyrirhuguðum þéttingaráformum Hafna ásökunum á hendur Gunnari Smára Varðhald í manndrápsmáli, offita barna og íslenskir kafbátar Berklasmit á Fáskrúðsfirði Berghildur Erla hlaut blaðamannaverðlaun fyrir Vistheimilin Guðni verður prófessor í nafni Jóns Sigurðssonar Leikarar og dansarar á leið í verkfall Bein útsending: Blaðamannaverðlaunin afhent Tekið á móti nýju hafrannsóknaskipi Taldir hafa nýtt sér óvissu um starfsemi Zuism til þess að svíkja út fé Ögurstund upp runnin hjá VR Skjálftahrina við Reykjanestá Lýsir ofríki og andlegu ofbeldi Gunnars Smára Samþykkt að fella 700 til 900 tré í næsta áfanga Ráðherra mátti sín lítils gegn ríkinu Fangelsisdómar Zúistabræðra staðfestir Lögregla lýsir eftir manni Bæjarfulltrúum í Suðurnesjabæ fækkað um tvo Bindur vonir við að aukið fjármagn fáist í viðhald fyrir vestan Ekki meira en 350 grömm af rauðu kjöti á viku og sem minnst af sykri Lögregla segir rannsókn manndrápsins enn á frumstigi Rannsókn lögreglu enn á frumstigi Mætt í sína fyrstu opinberu heimsókn innanlands Mæla gegn því að ungbörn séu hnykkt Bein útsending: Landlæknir endurskoðar ráð sín um mataræði Krefjast gæsluvarðhalds Almyrkvi á tungli snemma á föstudagsmorgun Stórfelldur laxadauði í Berufirði Tveir kaflar að Látrabjargi lagfærðir fyrir almyrkvann Svefnlyf ávanabindandi og auki hættu á heilabilun Sjá meira