Erlent

Fjórar milljónir hafa flúið í Írak

Talið er að tæpar fjórar milljónir Íraka hafi flúið heimili sín síðan bandamenn gerðu innrás í landið árið 2003. Tvær milljónir hafa flúið til annarra landa og ein komma sjö milljónir flúið undan átökum til annarra héraða.

Hluti af innanlandsflutningunum er vegna þess að sjía og súnní múslimar eru að flýja til þeirra héraða þar sem þeir eru fjölmennastir. Skipting landsins er því í fullum gangi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×