Erlent

Beckham undrandi á leikbanni

David Beckham.
David Beckham. MYND/AP

David Beckham er undrandi á þeim orðum Fabios Capellos, þjálfara Real Madrid að hann muni ekki leika fleiri leiki með liðinu. Capello sagði á blaðamannafundi í dag að Beckham myndi æfa með Real Madrid, en ekki spila neina leiki.

Capello sagði að Beckham hefði alltaf verið fagmaður og frábær atvinnumaður, en ef leikmaður hefði gert svona mikilvægan samning við annað lið, væri ekki hægt að treysta á hann.

Talsmaður Bechams sagði að eftir því sem hann vissi best væri hann samningsbundinn liðinu næstu sex mánuðina, og honum sé annt um það og stuðningsmenn þess, og vilji gera sitt besta fyrir þá fram á síðustu stundu.

Óljóst er hvort Beckham muni óska eftir að vera lánaður út, til þess að geta haldið áfram að keppa, eða hvort hann reynir að fá sig lausan fyrr frá Real Madrid.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×