Enski boltinn

Deco vill fara til Englands

Deco er lykilmaður hjá Barcelona og myndi sóma sig vel í hvaða liði sem er á Englandi.
Deco er lykilmaður hjá Barcelona og myndi sóma sig vel í hvaða liði sem er á Englandi. MYND/Getty

Portúgalski miðjumaðurinn Deco hjá Barcelona hefur lýst því yfir að hann vilji spili í ensku úrvalsdeildinni í framtíðinni. Deco er samningsbundinn Evrópumeisturunum til ársins 2010 en útilokar ekki að fara til Englands fyrir þann tíma.

“Ég myndi vilja spila í Englandi einn daginn því fótboltinn þar heillar mig mikið,” sagði Deco sem eitt sinn var undir smásjá Manchester United auk þess sem Jose Mourinho, stjóri Chelsea, hefur ausað lofi á portúgalska leikstjórnandann eftir að hafa verið þjálfari hans hjá Porto í tvö ár á sínum tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×