Körfubolti

A-deildin úr sögunni hjá stelpunum

Helena Sverrisdóttir skoraði tólf stig fyrir íslenska liðið.
Helena Sverrisdóttir skoraði tólf stig fyrir íslenska liðið. Vilhelm

Íslenska kvenna­landsliðið á ekki lengur möguleika á að vinna riðilinn sinn í B-deild Evrópukeppninnar eftir 52-73 tap á móti Hollandi á Ásvöllum í gær en sigurvegarinn í riðlinum fer í umspil um sæti meðal A-þjóða. Íslenska liðið byrjaði leikinn illa og lenti strax 4-18 undir og eftir það var á brattann að sækja. Holland var 16 stigum yfir í hálf­leik, 20-36, en munurinn var kominn niður í 13 stig, 36-49, fyrir loka­leikhlutann.

Hollenska liðið er á leiðinni upp í A-deild ef marka má leikinn í gær en liðið hefur unnið alla fjóra leiki sína til þessa. Þjálfarinn Meindert van Veen er samt ekki ánægður með frammistöðu sinna stelpna þrátt fyrir öruggan sigur. „Við þurfum að spila miklu betur ef við ætlum að komast upp í A-deildina. Við náðum góðu forskoti í byrjun og síðan var erfitt fyrir mitt lið að halda einbeitingunni. Ég er mjög ósáttur með hvernig mitt lið leysti svæðisvörnina. Íslenska liðið var betra í fyrra, liðið er yngra og reynsluminna og það lítur út fyrir að það sé verið að byggja upp nýtt lið,“ sagði van Veen eftir leikinn.

Íslenska liðið keppir nú um annað sætið við Norðmenn og Íra en til þess að það komi í hús þarf liðið að vinna bæði lið á útivelli næstu tvær helgar.

„Þetta var allt of stórt tap. Við vorum bara svo lengi í gang, skotin duttu ekki og þær tóku of mörg sóknarfráköst. Ég fer samt ekkert ofan af því að við erum ekki með lélegra lið því það er svo margt hjá okkur sem þarf að slípa. Sóknin gengur ekki nægilega vel og það er aðallega vegna þess að við erum ekki að spila æfingaleiki. Við erum ekki komnar eins langt í ferlinum eins og þær,“ sagði Guðjón Skúla­son landsliðsþjálfari.

„Ég er ánægður með baráttuna en ég er ekki ánægður með varnar­fráköstin. Sóknin getur líka verið miklu betri,“ sagði Guðjón en hvernig lítur hann á tvo síðustu leikina? „Við ætlum að vinna tvo síðustu leikina. Stelpurnar voru flengdar af Noregi hérna heima og við ætlum að fara í þann leik og taka með okkur þá reynslu og vonandi náum við að nýta þessa viku vel,“ sagði Guðjón að lokum.

Stig Íslands: Helena Sverrisdóttir 12 (4 stoðs.), Hildur Sigurðardóttir 11 (9 þeirra í seinni hálfleik), Signý Hermannsdóttir 9 (8 fráköst, 4 stolnir), Svava Ósk Stefánsdóttir 6 (3 stoðs.), Bryndís Guðmundsdóttir 5, Pálína Gunnlaugsdóttir 4 (öll stig Íslands á fyrstu 8 mínútunum), Petrúnella Skúladóttir 3, Margrét Kara Sturludóttir 2 (6 fráköst á 13 mín.).- óój




Fleiri fréttir

Sjá meira


×