Fótbolti

Sýnd veiði en ekki gefin

David Taylor, ritari evrópska knattspyrnusambandsins, dregur Liverpool upp úr skálinni í Sviss í gær.
David Taylor, ritari evrópska knattspyrnusambandsins, dregur Liverpool upp úr skálinni í Sviss í gær. Fréttablaðið/AFP

Liverpool, sem eins og kunnugt er hlaut silfurverðlaunin í Meistaradeildinni á síðasta tímabili, mætir franska liðinu Toulouse en Arsenal dróst gegn Sparta Prag frá Tékklandi. Andstæðingarnir þykja báðir sýnd veiði og wgeta báðir veitt ensku stórliðunum harða keppni á góðum degi.

„Franska úrvalsdeildin er mjög öflug og Toulouse er með nokkra góða leikmenn. En við eigum stutt ferðalag fyrir höndum og spilum síðari leikinn á Anfield, svo ég geti ekki verið annað en sáttur," sagði Rafa Benitez, stjóri Liverpool, í gær.

Michal Bilek, þjálfari Sparta Prag, er vongóður um að lærisveinar hans geti gert Arsenal grikk. „Þeir eru að sjálfsögðu líklegri til að komast áfram en lið þeirra hefur breyst nokkuð frá síðasta ári og er enn að mótast. Við ætlum að reyna að nýta okkur það," sagði Bilek.

Íslandsmeistarar FH voru fyrsta liðið sem komu upp úr hattinum í gær en sigurvegarinn úr einvígi liðsins við FC Bate Borisov frá Hvíta-Rússlandi mætir sigurvegaranum í leikjum Zaglebie Lubin frá Póllandi og Steaua Búkarest frá Rúmeníu. FH þarf að vinna upp 3-1 tap á heimavelli í vikunni í síðari leiknum ytra og verður að teljast afar ólíklegt að Íslandsmeistararnir komist áfram í þriðju umferð.

Af öðrum einstaka viðureignum má nefna að Celtic mætir Spartak Moskvu, Sevilla tekur á móti AEK frá Aþenu og FC Kaupmannahöfn mætir Benfica, fari svo að liðið komist áfram úr 2. umferð. Fyrri leikirnir í þriðju umferð fara fram 14. og 15. ágúst og síðari leikirnir tveimur vikum síðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×