Heilsa

Dísilbílarnir menga minnst

Stefán Ásgrímsson, ritstjóri FÍB blaðsins, segir skilgreiningu á umhverfisvænum bíl vera þá að þeir blási frá sér minna en 120 grömmum af koltvísýringi á hvern ekinn kílómetra.
Stefán Ásgrímsson, ritstjóri FÍB blaðsins, segir skilgreiningu á umhverfisvænum bíl vera þá að þeir blási frá sér minna en 120 grömmum af koltvísýringi á hvern ekinn kílómetra. MYND/GVA

Umhverfisvænir bílar hafa verið mikið í umræðunni að undan­förnu og hefur forseti Íslands nú bæst í hóp þeirra sem velja þann kost. Stefán Ásgrímsson, ritstjóri FÍB blaðsins, segir Svía lengst á veg komna með að skilgreina hvaða bílar séu umhverfisvænir.

„Svíar skilgreina umhverfisvæna bíla þannig að þeir blása frá sér minna en 120 grömmum af koltvísýringi á hvern ekinn kílómetra. Þá er alveg sama hverju þeir brenna," segir Stefán og bætir því við að auðveldast sé að ná þeim markmiðum með dísilvélum. „Þess vegna eru fleiri dísilbílar sem falla í flokk umhverfisvænna bíla en bensínbílar og aðrir bílar, meira að segja þótt þeir brenni metanóli."

Stefán nefnir litlu þríeinu bílana Toyota Aygo, Citroen C1 og Peugeot 107 sem allir séu vel undir mörkum en í raun sé þetta sami bíllinn með mismunandi útliti.

 

BMW 7 línan er umhverfisvæn og bílarnir ganga fyrir vetni.

Spurður hvort það sé á hvers manns færi í dag að vera á bíl sem gengur fyrir óhefðbundnu eldsneyti, segir Stefán: „Metanbílarnir hafa nú þann voðalega annmarka að metanið fæst ekki nema á einum stað í Reykjavík og hvergi annars staðar á landinu. Vegna þess að minni orka er í hverjum rúmmetra af metangasinu þá þarf oftar að fylla á metanbílana og maður kemst varla til Akureyrar á einum tanki af metangasi þannig að maður þyrfti þá að keyra á bensíni til baka."

Stefán segir að þegar framleiðendur sjálfir auglýsi að bílar séu umhverfisvænir þá sé það ekki endilega sannleikanum samkvæmt. „Ég væri til dæmis ekkert endilega tilbúinn að samþykkja að tvinnbílar sem eru með bensínvél til að framleiða straum sem svo er notaður til að snúa hjólunum séu neitt sérstaklega umhverfisvænir. Þar er kominn inn aukamilliliður, aukin þyngd og flóknari búnaður og meiri orku þarf til að knýja bílinn áfram," segir Stefán og bætir við:

 

Toyota Prius er tvinnbíll og segist Stefán ekki endilega tilbúinn að samþykkja að slíkir bílar séu sérstaklega umhverfisvænir eins og jafnan er haldið fram.MYND/E.ól

„Snilldin í þessum bílum felst hins vegar í því að þegar maður bremsar þá breytir bíllinn hemlunarorkunni í straum og hleður honum inn á batteríið. Úti á vegum þegar ekki er mikið verið að hemla þá græðir maður ekkert á þessu."

Stefán segir nýja forsetabílinn einmitt vera tvinnbíl og því fínan inni í borginni því þar eyði hann örugglega ekki miklu þar sem hann er alltaf að endurnýta hemlunarorkuna.








×