Heilsa

Þingmaður vill banna alla bíla sem komast upp í 165 km hraða

Meira að segja Toyota Yaris kemst hraðar en 165 km/klst og ef hann er orðinn of stór og eyðslufrekur er fokið í flest skjól.
Meira að segja Toyota Yaris kemst hraðar en 165 km/klst og ef hann er orðinn of stór og eyðslufrekur er fokið í flest skjól.

Breski Evrópuþingmaðurinn Chris Davies vill banna alla bíla sem komast hraðar en 162 km/klst, eða 101 mílu/klst. Ástæðuna segir hann að eftir því sem bílar verða kraftmeiri verða þeir þyngri og mengi um leið meira.

Ekki er talið líklegt að þingið taki vel í hugmyndir hans, enda varla heil brú í röksemdafærslu hans.

Það er erfitt að finna bíl framleiddan á síðustu árum sem ekki nær þessum hraða og séu bílar gríðarþungir og mengi mikið eru þeir mun líklegri til að komast ekki á 170 km hraða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×