Fótbolti

Pressan slátraði Börsungum

Spænska pressan gekk af göflunum í gær eftir neyðarlegt 4-0 tap Barcelona fyrir Getafe í undanúrslitum spænsku bikarkeppninnar. Börsungar voru með 5-2 forystu eftir fyrri viðureign liðanna en eru nú úr leik.

„Maður á von á öðru en slíkri frammistöðu af stórliði eins og Barcelona. Ég get ekki útskýrt þetta,“ sagði Samuel Eto‘o, leikmaður Barca í gær. „Ég skammaðist mín. Ég óskaði þess að jörðin hefði opnast og gleypt mig. Ég grét eftir leikinn í gær og gat ekkert sofið um nóttina.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×